Færsluflokkur: Bloggar

ESB!!

Ég hef trúað því í níu ár að Íslendingar ættu að ganga í ESB.

Ég ætla ekki að skrifa um kosti eða galla bandalagsins hér, en ég mæli eindregið með því að allir þeir sem eru andvígir aðild lesi grein Illuga Jökulssonar er birtist í Fréttablaðinu í dag. 


mbl.is Forsendur fyrir vaxtalækkun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hressandi

Frábær tíðindi.

Ég vona innilega að trúðurinn með rauðu kinnarnar verði sem lengst á Anfield.

Það er unun að hlusta á manninn tjá sig á enskri tungu!!

 


mbl.is Benítez samdi við Liverpool
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er það satt!!

Ágætis lag og fínn flutningur Jóhönnu. Hún hefur bæði útlitið og röddina til að ná langt.

En ég vill að okkar framlag verði sungið á íslensku. 

Raunar tel ég að allar þjóðir eigi að flytja sín lög á eigin tungu. Þessi keppni er orðin frekar einsleit þegar flest lögin eru sungin á ensku.


mbl.is Lagið Is it true til Moskvu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Davíð eins og við þekkjum hann!!

Enn og aftur sýnir Davíð Oddson sitt rétta eðli, skítlega eðlið eins og forseti vor kallaði það.

Dabbi!! Hættu þessum sandkassaleik. Farðu frekar að skrifa bækur eða sinntu öðrum tómstundum.

Þjóðin þarf frið og hvíld frá þér. Þinn tími er löngu liðinn.


mbl.is Davíð segir ekki af sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mótmælum áfram!!!!

Sú staðreynd að Geir Haarde hafi greinst með illkynja krabbamein er auðvitað mannlegur harmleikur. Samúð mín er hjá honum og fjölskyldu hans.

Þrátt fyrir þessi tíðindi er með öllu ótækt að hætta friðsamlegum mótmælum. Mótmælum má ekki linna fyrr en ríkisstjórnin hefur sagt af sér og stjórn Seðlabankans og fjármálaeftirlits hafi vikið.

Við megum heldur ekki láta óheppileg ummæli Harðar Torfasonar trufla okkur. Hans ummæli eru ekki rödd fólksins!


mbl.is Geir: Kosið í maí
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

El grand classico

Ágætis leikur í gærkvöld.

Eiður Smári er að mörgu leyti vanmetinn leikmaður hjá stuðningsmönnum Barcelona. Hann hefur það hlutverk að spila einfalt og halda spilinu fljótandi. Hann er ekki áberandi á vellinum en gegnir samt sem áður mikilvægu hlutverki.

Eiður var ekkert sérstakur í gær og var tekinn út af eftir rúmar 60 mínútur. En hann var ekki sá eini sem spilaði undir meðallagi. Þannig var Xavi mjög slakur og í raun hefði átt að taka hann af velli í staðinn fyrir Eið.


mbl.is Barcelona vann risaslaginn, 2:0
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dagurinn í dag

Ég hef lítið fylgst með fréttum síðustu daga. Enda ekkert að frétta.

Á vef Morgunblaðsins er þetta ein mest lesna fréttin:

Gamall og þreyttur stjórnmálamaður frá Svíþjóð er staddur á klakanum. Hann er hér til að segja okkur að kreppan verði Íslendingum erfið og að við sitjum uppi með ónýtan gjaldmiðil. Það þarf gera eitthvað til að redda þessu veseni, og helst fljótlega.

Takk fyrir þetta elsku kallinn minn!

Það var nú samt alveg óþarfi að koma alla leið frá Svíþjóð til að segja okkur þetta.

Svona eru flestar fréttir í dag, tilgangslausar.

En annars fór ég í klippingu í dag. Það var hressandi.

 


mbl.is Íslendingar mega ekki bíða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óþolandi!

Fámennur hópur ræðst á lögreglustöðina við Hverfisgötu. Óskiljanlegt.  Þessi aðgerð skilar engum árangri!

Það er sorglegt að sjá hversu mikla athygli slík fíflalæti fá í fréttamiðlum. Það eru jú bara fífl sem hegða sér svona!


mbl.is Mótmæli við lögreglustöðina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ástandið

Mikið af fólki er ósátt í dag. Bretar og Hollendingar eru ekki glaðir. Íslendingar eru ekki glaðir. Allir eru brjálaðir.

Enginn veit hvað gerist á morgun. Óvissan er erfið.

Annað slagið eru haldnir blaðamannafundir, svona til að halda spennunni og búa til meiri óvissu.  Líkt  og í Lost.

Margir hafa tapað ævisparnaði sínum eða misst vinnunna. Óþarfi að æsa sig yfir því. Það má nefnilega ekki mótmæla á Íslandi.

Það borgar sig ekki að henda eggjum eða hengja upp fána.  Frekar á fólk að safnast saman og ræða málin. Það er mun þægilegra.

Það borgar sig heldur ekki að persónugera þennan vanda. Það er enginn einn sökudólgur. Reyndar eru þeir svo margir að ekki er hægt að kenna neinum um. Þetta bara gerðist.

Íslendingar verða að hlýða ríkisstjórninni. Við eigum að vera stillt. Þá gengur allt betur.

Ríkisstjórnin vill deyfa almenning og halda öllum rólegum.


mbl.is Vaxandi reiði í garð Íslendinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stórtíðindi

Ég var farinn að sakna þessara blaðamannafunda.

Ætli að fundurinn verði á pólsku.

Kannski býður Geir Haarde blaðamönnum uppá Prins póló, svona í tilefni dagsins.


mbl.is Ráðherrar boða til blaðamannafundar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Um bloggið

Ólafur Björnsson

Höfundur

Ólafur Björnsson
Ólafur Björnsson
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband